Er lifandi.

Hæ er en að en að vísu er ég búin að flytja mig meira inn á       joijaki.123.is      og inn á fésabók. með kveðju ef einhver vil skoða síðuna mína.

Margt að ske.

Já það er ýmislegt sem gengur á hjá mér (okkur) þessa dagana.  Veit ekki hvar best er að byrja, En konan er kominn heim af sjúkrahúsinu kom heim á föstudaginn, afi Ragnar dó 1 apríl, nokkrum var sagt upp í vinnunni hjá mér við feðgarnir komumst á snjósleða um helgina og með þessu áframhaldi getum við líka komist um páskana. Stefnan er sú að komast um páskana eitthvað með fjölskylduna og vinni ef maður á einhverja á sleða og skíði kannski en það er alla veganna nægur snjór til þess. Ekkert annað margt vert er að frétta hjá mér hveð bara í billi og góða páska. Jói


Prófa áfram.

Best að nota frí tíman til að skrifa smá hér en annars er maður alltaf að gera eitthvað er að far upp vatnahjalla og vonandi að sánktipétri á eftir, var að komast að því að helgin 4 til 5 apríl væri ekkert að gera hjá mér né helgin 18 og 19 apríl eru einhverjir með hugmyndir.  Því þessar tvær helgar eru ekki neitt sem ég man eftir að hafa lofað að gera. Ég var að sjá að allar aðrar helgar til 13 júní væri ég búin að gera einhverja áætlun. Best seini lega að hætta að spá og reina að finna eitthvað að gera þessar helgar sem eftir eru. bless í bili og gleðilega páska ef ég skrifa ekkert þangað til á netinu kveðja Jói


Jóladagur kominn.

Já þá eru jólin að vera búinn þetta árið og farið að styttast í gamlárskvöld.  Hef nú seinni ár haft meira gaman af því kvöldi en jólunum að vissu finnst mér mjög gaman að fara í allar veislunnar og borða yfir mig.  Gerði það í gærkveldi hjá Gamlasettinu og fer svo til ömmu í dag og borða örugglega yfir mig þar líka.  Alla veganna hefur það verið vaninn hjá mér.  Er þá hættur í um stund vona bara að ég fari að vera duglegri að skrifa hér inni.  PS ein mynd af syni mínum og langafa hans um 90 ár eru á milli þeira Bless í billi.

                           Afi og Jakob


Jólin nálgast.

Ég sé fram á að jólin koma á réttum tíma þó að það sé kreppa á landinu.  Eins og svo oft áður á ég eftir að gera allt mögulegt en er búin að kaupa handa konunni hef venjulega verslað eitthvað fallegt handa henni á Þorláksmessu eða á aðfangadag. En í ár verslaði ég handa henni gjöfina í október en á síður von á að halda þeim siði við er lítið fyrrir að breyta til.  En hér er allt gott að frétta er loksins kominn í jólafrí og verð í því að vissu bara til 5 janúar ekki svo slæmt.   Ég óska svo þeim sem nenna að lesa þetta Hrafnaspark Gleðilegra jóa og gott nyttár. Bless í bili. IMG_2198

Hvernig er þjóðfélagið.

Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör.  Alla veganna er svo komið í þjóðfélaginu í dag að mínu mati að ég og þeir sem eiga ekkert hafa hvorki hagnast á þessu né tapað.  Verðlagið á eftir að breyttast eitthvað menn og konur eiga eftir að minka utanlandsferðir sínar ferðamenn eiga kannski eftir að fjölga hvað veit maður svo sem á meðan Ríkisstjórnin horderast.  Alla veganna verður hún að hætta að horderast og fara að gera eitthvað með viti.  Hætta að búa til störf handa sjálfum sér til að vera í í ellinni.  Og svo verður hún að fara að auglýsa eftir hæfu fólki til að stjórna ekki setja afdala þingmen.  Kannski best að skrifa um eitthvað málefnalegt eða bara horderast.  Hér er allt gott að fréttaeins og svo oft hjá okkur ég er búin að skrifta um símafélag en ekki um númer alla vegana ekki straks vona alla vegana að það gángi að skifta um símafélag.  En bless í billi.

Haust göngur eru senni lega búnar.

Er kannski búinn í göngum í haust alla vegna vona ég það smá.  Hér á Læk er allt gott að frétta sonurinn farin að æfa júdó, frjálsar og fótbolta mann alla vega ekki eftir fleiri greinum í bili. Hann æfði fótbolta og frjálsar í sumar og er að spá í að bætta júdói við núna, Honum langar að læra karate en það er ekki kennt á Hrafnagili svo það verður að bíða smá vona bara hans vegna að hinar íþróttirnar hjálpa honum.  En nóg af stráknum og smá af mér er á kvöldvakt í þessari viku og ætla að gera sem minst á milli vakta hjá mér það er alla vegana stefnan.  Bless við heyrumst.

Breytting í vinnuni.

Það á að breytta smá í vinnunni hjá mér.  Við erum að fara áð vinna vaktavinnu frá klukkan 6 til 14 og 14 til 22 ég hef ekki unnið vakta vinnu svo ég veit ekki hvernig það er en það leggst bara ágætlega í mig að byrja að vinna vaktavinnu.  En hugmyndin er að loka skólanum í vaktavinnu og svo fara á venjulegt plan.  En aðrar fréttir eru ekki hér hjá mér svo það hlíttur allt að vera gott.  Jú ein frétt Gaggi frændi er með forystu í kvartmílu í sínum flokki(getur orðið íslandsmeistari. Kveðja Jói

Möðrufellsfjall.

Við feðgarnir gengu upp á Möðrufellsfjall í dag það er um 901 metir á hæð. Við lögðum á stað með tengdaforeldrum mínum en þau nenntu ekki alla leið upp og fóru í gegnum skarðið. en við Jakob fórum alla leið upp og þaðan er finnst útsyni um Eyjafjörðinn.   Vonandi nennum við feðgarnir að ganga upp á fleiri fjöll.  Því að áhugi hans Jakobs að ganga er vonandi kveiktur og ég verð bara að vera duglegur að sina hans áhuga.  Mér skilst á honum að hann langi að ganga upp á Kerlingu næst. veit ekki hvort að því verði en maður veit aldrei hann er nú bara 8 ára svo það er einhver tími til að ganga þar upp.  Jæja bless í billi Jói


Ljóð

 Hárin grána á höfði mér

harðnar lífsins róður

ellin sækja að mér fer

andans fölnar gróður.

 

Sólin skín á sundin blá

svanir ljóða á tjörnum

yndi vekur óður sá

öllum jarðar börnum.

 

Ilm úr suðri blærinn ber

byggðir yfir Eyjafjarðar

vorið bjarta á vængjum fer

vekur líf úr skauti jarðar.

 

Höfundur er Jói afi minn. Ég sá þetta ljóð áðan í dóti og datt í hug að það mydi síður tínast í tölvunni minni. Kveð að sinni.


Næsta síða »

Um bloggið

Jóhannes Jakobsson

Höfundur

Jóhannes Jakobsson
Jóhannes Jakobsson
Hér skrifa ég fréttir af mér og mínum. Um það sem ég geri.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Afi og Jakob
  • IMG_2198
  • ...rman_emblem

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband