Ljóð

 Hárin grána á höfði mér

harðnar lífsins róður

ellin sækja að mér fer

andans fölnar gróður.

 

Sólin skín á sundin blá

svanir ljóða á tjörnum

yndi vekur óður sá

öllum jarðar börnum.

 

Ilm úr suðri blærinn ber

byggðir yfir Eyjafjarðar

vorið bjarta á vængjum fer

vekur líf úr skauti jarðar.

 

Höfundur er Jói afi minn. Ég sá þetta ljóð áðan í dóti og datt í hug að það mydi síður tínast í tölvunni minni. Kveð að sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hæ Jói minn, gaman að þú skyldir setja þetta ljóð eftir afa þinn og nafna á síðuna.  Hlakka til að sjá ykkur á "Hittingshelgi" Gilsbakkaranna, verst að Jakob junior missir af henni, en það er kannske ennþá skemmtilegra í Danmörk hjá morfar og mormor.  Vel á minnst hvar á landinu eru þið stödd. Ég fæ annarslagið fréttir af ykkur í Reykjavík , í Vík, á leið á Hvammstanga, að vinna á tjaldstæði, og á leið í sumarbústað á suðurlandi.  Maður sem sagt veit aldrei hvar þið eruð niðurkomin!!!! En hvar sem þið eruð þá hafið það gott. Kveðja mútta gamla.

mútta gamla (IP-tala skráð) 3.8.2008 kl. 21:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Jóhannes Jakobsson

Höfundur

Jóhannes Jakobsson
Jóhannes Jakobsson
Hér skrifa ég fréttir af mér og mínum. Um það sem ég geri.

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Afi og Jakob
  • IMG_2198
  • ...rman_emblem

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband